Leita í fréttum mbl.is

Ein jákvæð í lok dags.

Grímsvötn í áttunda sæti, kemur okkur svo sem ekki á óvart.  Eða hvað?  Kemur það kannski okkur almenna borgaranum á óvart? Erum við eitthvað að gleyma náttúruundrunum í kringum okkur? Þeir sem lásu bloggið mitt sl. sumar komust að því að ég hafði aldrei komið í Dimmuborgir eða Laufás síðan börnin mín fæddust.Og samt er svo stutt fyrir okkur að keyra í Mývatnssveitina að þetta er  hinn ágætasti sunnudagsbíltúr. Ég er ekki nema hálftíma út í Laufás og samt hafði ég aldrei farið með börnin á vinnudagana þar sem eru að boðstólum annað slagið allt sumarið. Hvernig er með tónleikana sem eru haldnir í virkjunum, ja allavega hér norðanlands í júní? Er ekki málið að muna eftir þeim núna, í júní, ekki í ágúst eins og síðasta sumar.

 En á sama tíma og við höfðum keyrt alltof lítið hérna í svona eins dags ferðalags fjarlægð, þá erum við búin að fara kringinn i kringum landið einu sinni og nokkur skipti í góðærisferðir til útlanda.

Við ákváðum í haust að fara ekki í utanlandsferð nú í sumar (mikið varð ég fegin þegar kreppan skall á) og kaupa heldur alvöru Trampolín. Nógu stórt til að unglingurinn geti skemmt sér. Valkirkjan ætlar að keppa á ólympíuleikunum seinna meir í æfingum á Trampolíni, svo ekki seinna vænna er að fjárfesta í einu slíku, svo hún geti farið að æfa sig.

Annars hafa það flestir hér eins ágætt og þeir vilja.

Vona að eins sé með ykkur


mbl.is Grímsvötn á lista merkilegustu eldfjalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Fer ekki í utanlandsferðir nema ég þurfi... fór í fyrra til Gautaborgar til að vera viðstödd þegar dóttir mín útskrifaðist sem félagsráðgjafi  Fer í hálendisferðir af því að ég virkilega þarf þess... alveg nauðsynleg uppfærsla fyrir sál og líkama... en bara á sumrin

Jónína Dúadóttir, 28.3.2009 kl. 07:22

2 Smámynd: Anna Guðný

Fer ekki í utanlandsferðir nema ég þurfi...

Verð að viðurkenna að þetta er í fyrsta sinn sem ég sé einhvern segja þetta og meina það.

Ég hef nefninlega aldrei verið pínd til að fara til útlanda, það hefur sko alltaf verið af fúsum og frjálsum vilja  sem ég hef farið.

Hef aldrei farið í hálendisferð, er óstjórnlega bílhrædd utan alvöru vega. Spurning hvort ég breytist eitthvað í ellinni.

Hafðu það gott, hugsum til þín í dag

Anna Guðný , 28.3.2009 kl. 13:37

3 Smámynd: Auður Proppé

Það er skammarlegt hvað við höfum ferðast lítið um Ísland, segi það sama og Jónína, dauðfegin að "hafa afsökun" að fara ekki erlendis í sumar.  Vonandi getum við fjölskyldan séð meira af Íslandi, þó innanlands ferðalög og eldsneyti kosti nú sitt líka.

Auður Proppé, 28.3.2009 kl. 15:58

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Grímsvötnin eru ókei, en hvers vegna minnist enginn á Fjaðrárgljúfur?

Baldur Hermannsson, 28.3.2009 kl. 22:39

5 Smámynd: Anna Guðný

Baldur:  Það er góð spurning, ég hef aldrei heyrt um þetta gljúfur.Þú kannski segir okkur hvar það er.

Auður: Auðvitað komast ekki allir í ferðalag, hvort sem það er innanlands eða utanlands en allavega sem komast leggi svolítið meiri áherslu á landið okkar

Anna Guðný , 29.3.2009 kl. 00:34

6 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Ja hérna, ég fer til úttlanda ef ég get og hef gaman af, en ég á eftir að ferðast um vestfirði og það er næst á skrá.  Ég hef einu sinni komið í Laufás á svona vinnudag, og svona 3 í Mívarnssveit. Var að tala um síðustu 9 ár. Og svo gifti ég mig í Laufási 2000, ekki má gleyma því.

Knús til þín.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 29.3.2009 kl. 01:32

7 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ollana, það er eitt af undrum hversdagsins hve fáir Íslendingar kannast við Fjaðrárgljúfur. Þetta er einn af fallegustu reitum landsins. Þú verður að fara þangað í sumar. 15 mínútna akstur frá Kirkjubæjarklaustri - í vestur og síðan norður.

Baldur Hermannsson, 29.3.2009 kl. 07:43

8 Smámynd: Auður Proppé

Já, ég er sammála því að við þurfum að leggja meiri áherslu á landið okkar og þá fegurð sem við eigum hér.

Auður Proppé, 29.3.2009 kl. 08:19

9 Smámynd: Erna

Ég vildi að ég ætti svona val, trampólín eða utanlandsferð. Þar sem mig langar ekkert í trampólín yrði utanlansferð fyrir valinu hjá mér

Eigðu góðan dag Anna mín og takk fyrir síðast

Erna, 29.3.2009 kl. 10:12

10 Smámynd: Anna Guðný

Dúna: Takk fyrir innlitið. Ég ætla einmitt að taka mig á með Laufás. Fór einn dag í fyrra og var mjög gaman. Svo ætla ég í Laxárdalsvirkjun á tónleikana ef ég bara man.

Baldur: Ég hef einu sinni farið hringinn með fjölskylduna. Man ekki alveg allt þarna fyrir austan sem þýðir að ég á eftir að koma aftur. Set þá Fjarðárgljúfur á listann: Verð að sjá.

Auður mín: Takk fyrir fallegt bréf. Kallar á minnst vesen að hafa þetta svona. Ætlaði inn á síðuna þína og senda kveðju en komst ekki inn. Hafðu það gott elskan.

Já Erna mín, við höfum val hérna í næstu götu. Þú kemur þá bara á mitt Trampolín ef þú færð löngun.

Anna Guðný , 29.3.2009 kl. 10:39

11 Smámynd: Auður Proppé

Skrýtið, þú hefðir átt að komast strax inn, en sé að þú ert komin inn núna svo það er gott.  Takk fyrir innlitið hjá mér og hlý orð.

Auður Proppé, 29.3.2009 kl. 11:14

12 Smámynd: TARA

bara kíkja inn...bestu kveðjur

TARA, 29.3.2009 kl. 22:56

13 Smámynd: egvania

Ég á trampólín en langar út í sól og sumar.

egvania, 29.3.2009 kl. 23:10

14 Smámynd: Anna Guðný

Auður: Allt í góðu vina.

Tara: Takk fyrir innlitið

Ásgerður mín. Þetta kemur allt.

Anna Guðný , 30.3.2009 kl. 07:57

15 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ja hérna Anna Guðný mín, nú er bara að drífa sig, og svo er hægt að koma í kaffi á Húsavík þetta er bara flottur hringur.
Og þið öll landið okkar er svo fallegt að maður tekur andköf í hvert skipti sem maður ekur um það, alltaf sér maður eitthvað nýtt.
Ég elska Ísland, en þó hef ég oft farið erlendis.
Ljós til þín elskan

Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.3.2009 kl. 09:30

16 Smámynd: Anna Guðný

Og svo er hægt að koma í kaffi á Húsavík, það er víst.

Takk fyrir helgina Milla min

Anna Guðný , 30.3.2009 kl. 14:14

17 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mín er ánægjan Anna Guðný mín og sömuleiðis.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.3.2009 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 201258

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband