Leita í fréttum mbl.is

Öskudagurinn á Akureyri

Einhverntímann síðustu nótt er pikkað í öxlina á mér og sagt: Mamma, ég vaknaði og gat ekki sofnað aftur út af veðrinu. Ó nei, hugsa ég. Við sem erum að fara á flakk í fyrramálið. En valkirkjan eyddi síðustu klukkutímunum eiginlega ofan á mér meira en við hlið. Hún er nefninlega svo hrædd um að meiða pabba af því hann var í skurðaðgerð. En eitthvað dormuðum við og fórum svo á fætur upp úr hálf sjö. Unglingurinn var óvenjufljót á fætur, því hún var á leið til höfuðstaðarins í dag. Gaurinn aðeins í lága gírnum, hálfþreyttur, blessaður. En allir voru að verða til þegar afgangurinn af liðinu mætti hér um hálfátta. Rúmur hálftími fór svo í að æfa smá, setja upp andlitið  og mömmurnar fengu sér kaffi og spjölluðu eitthvað.

Svo lögðum við í hann.

 

P2250037

Klappstýrurnar.

Mamman með hettuna saumaði búningana upp úr gömlum bolum keyptum í pokavís á flóamarkaði Hjálpræðishersins. Takk elsku Guðrún ofurmamma með saumavél.

Þetta er sem sagt Troy ú High School Musical með klappstýrunum sínum.

 

Við fengum alveg aldeilis frábærar móttökur allsstaðar.

P2250002

Hér eru þau á Óseyrinni.

 

P2250006

Lúlli frændi bókar á Blikkrás.

 

P2250008

Þessir kalla sig Emil og útrásarvíkingana. Þeir voru ekkert smá góðir. Þið sjáið hvað þeir lifa sig inn í dæmið.

 

P2250018

Valkirjan mín að lifa sig inn í leikinn.

 

P2250028

Trésmíðafyrirtækið Ýmir tók vel á móti okkur.

 

P2250030

Þar hittum við líka Kristrúnu og Ómar með vinkonu sinni.

 

P2250033

Duglegar mömmur með fjögur á fæti og tvö í vagni. Kristín og vinkona hennar.

 

P2250038

Hér eru þau að syngja fyrir Gunnar bróður minn í Vélaborg.

 

P2250055

Liðið mitt að syngja.

 

P2250056

Lína langsokkur kemur í ýmsum stærðum.

 

Svo var nú það. Rosa gaman en mikið er ég þreytt eftir daginn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Flott !

Jónína Dúadóttir, 26.2.2009 kl. 08:23

2 Smámynd: Auður Proppé

Flottar myndir Anna mín og hefur greinileg verið gaman hjá skutlunum

Auður Proppé, 26.2.2009 kl. 08:25

3 Smámynd: Anna Guðný

Auður , mátt ekki gleyma Troy, hann er þarna líka

Jónína og Valdís. Takk fyrir innlitið. Já, það var mikið gaman.

Anna Guðný , 26.2.2009 kl. 08:37

4 Smámynd: Auður Proppé

Úps, fyrirgefðu Troy, þú varst heldur betur flottur líka

Auður Proppé, 26.2.2009 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 201274

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband