Leita í fréttum mbl.is

Hvað erum við að senda núna?

Verður fróðlegt að fylgjast með.Megi henni ganga rosalega vel. Nú hef ég ekkert á móti Jóhönnu Guðrúnu og heyri í henni syngja hér alla daga. Unglingurinn minn fékk nefninlega disk með henni í jólagjöf tvö ár í röð og nú er valkirjan að hlusta á þá fyrir svefninn. Valkirjan fór með hlustrið utan af diskinum fram fyrir sjónvarpið í kvöld og bar saman myndina á því og á skjánum. Jú, þær eru líkar, sagði hún.

Nú var ég bara búin að hlusta á lögin með öðru eyranu fyrir kvöldið í kvöld. Og úrslitin, ég var undrandi. Ég var eiginlega jafngáttuð og Jónsi yfir því að hún væri nefnd á nafn í vinningssætið.

Ég að vísu dæmið lagið númer eitt og svo flytjandann. Ég líka hef engan áhuga á að senda rólegt lag, vil einfaldlega hafa fjör í þessu. Þannig að líflegu lögin fara í efstu sætin hjá mér. Sem þýðir að vinningslagið komst aldrei á topp 5. Ég gat alveg sætt mig við að nokkur lögin væru send, þar á meðal Undir regnboganum með Ingó.

En þetta er svo ekki í fyrsta skipti sem ég er ekki sammála úrslitum. Mér skilst að það séu merki um sjálfstæðan vilja að vera í straumnum Smile 

Ákveð hér með að það sé málið núna.

 


mbl.is Lagið Is it true til Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Þetta er nú held ég í fyrsta skipti sem ég er sammála úrslitunum. Ég eins og þú dæmi lagið númer eitt tvö og þrjú. Og þetta lag kom bara einfaldlega best út hjá mér. Knús í nóttina vinkona

Erna, 14.2.2009 kl. 22:54

2 Smámynd: Anna Guðný

Gott að heyra að þú sért ánægð Erna mín. Svona er misjafn smekkurinn.

Knús í hús.

Anna Guðný , 14.2.2009 kl. 22:59

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Þetta var reyndar ekki á toppnum hjá mér en svona fór það - samt sæmilega sátt !

Hulda Margrét Traustadóttir, 15.2.2009 kl. 08:23

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan dag

Jónína Dúadóttir, 15.2.2009 kl. 08:45

5 Smámynd: JEG

Það hefði verið hægt að velja verrra lag.

Knús og kossar til þín mín kæra. 

JEG, 15.2.2009 kl. 11:50

6 identicon

Hæ gella ég er eins og þú Undir regnboganum hefði verið góður kostur líf og fjör. Ég veit ekki hvort Jóhanna er orðin nógu þroskuð í þetta hún treysti sér ekki í við tal á FM 957 vegan þess að hún væri hálf hrædd við einn starfsmanninn sem er létt geggjaðu skemmtilega þannig spyr stundum spurninga sem koma manni í opna skjöldu,mu  . Hvernig er húsdóndinn eftið baksðgerðina er hann ekki í endurhæfingu kannski Á Kristnesi. KV til þin Bögga

Bögga (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 12:25

7 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Kvitt og kveðja, ég er hætt að nenna að spá í lögin.  Ég vil heldur hafa fjör í þeim.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 15.2.2009 kl. 16:38

8 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

'Eg er ekkert hrifin af þessu lagi og þar fyrir utan er það allt allt of rólegt fyrir minn smekk

Knús í inn í nýja viku nafna

Anna Margrét Bragadóttir, 15.2.2009 kl. 23:41

9 Smámynd: Renata

Ég var líka undrandi, enda lagið og söngkona allt í lagi en ekki meira en það. Ég man ekki núna hvaða lag hún söng eða skilar sér ekkert í minni, sönglina eða texti þá að ég er búin að hlusta lagin þó nokkur skipti.

Renata, 16.2.2009 kl. 09:26

10 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir innlitið stelpur mína. Og allar athugasemdirnar. Skrýtið hvað margir sem ég þekki völdu ekki lagið og samt var svona yfirgnæfandi fjöldi sem kaus lagið. Jæja best að reyna ekki að skilja þetta.

En ekki byrjaði ferlið nú vel hjá henni að þora ekki í viðtalið daginn eftir. Hvernig verður þetta þá úti? Ekki víst að hægt sé að panta bara spurningar og spyrjendur.

Bögga mín. Hann fór aldrei á  Kristnes, heldur fékk ég hann bara beint heim. Hann er svona  að koma til.Gengur vel , en tekur tíma.  Mikið verð ég fegin þegar hann byrjar að keyra.

Díana: Það var gott að stubburinn þinn var hrifinn af disknum. Njóti hann vel. Ég gleymdi alveg að spyrja í sambandi við plásturinn á höfðinu, hvað gerðist eiginlega?

Hafið það gott elskurnar.

Anna Guðný , 16.2.2009 kl. 19:54

11 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Ljúfust mín

Sigríður B Svavarsdóttir, 17.2.2009 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 201256

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband