Leita í fréttum mbl.is

Föstudagur til fjár!

Hm.. ekki málið hér.Frekar til eyðslu hér í dag en það er auðvitað fjárfesting til framtíðar.

Allt í gangi hér eins og venjulega.

Yngri börnin í skólanum. Aðalmálið þar þessa dagana er undirbúningur fyrir árshátíð sem verður um næstu helgi. Mér skilst að ég eigi að fjárfesta í englavængjum í dag. Er kannski einhver Ak. sem les þetta og á vængi sem getur lánað okkur? Frekar stór fjárfesing fyrir ekki lengri tíma. Vængir eru sem sagt ekki notaðir mikið hér svona dags daglega.

Unglingurinn liggur í tannlæknastólnum á meðan ég skrifa þessi orð. Verið er að setja á hana spangir. Hún er búin að vera með beisli í tæpt ár minnir mig og hefur staðið sig eins og hetja. Bitið sem átti að rétta sem mest er orðið rétt. Þannig að hún fær 10+.

Eiginmaðurinn var að vakna á Landspítalanum. Svaf að vísu ekki mikið í nótt. Líf og fjör á deildinni. Hann var í skurðaðgerð þar í gær. Allt gekk vel og hnífurinn virkaði vel. Hann kemur  heim með flugi í kvöld. Það þýðir að við bjóðum vonandi upp á ný líf á þessu heimili hér eftir, líf án verkja. Mikið hlakka ég til. Strengirnir voru heldur betur farnir að styttast. Verð samt að viðurkenna að ég er ekkert viss um að hann verði skemmtilegur sjúklingur.Hann á nefninlega eftir að vera heima í 6-8 vikur. Talið við mig eftir 4. Blush Nú, eða hann. Við erum vön því að hann sé á sjónum og því er þetta alveg ótrúlega mikil breyting. Og þá af því hann getur svo lítið gert.

Ég fór á fund í Brekkuskóla hér á Ak. í gærkveldi og segi betur frá honum seinna i dag ef ég gef mér tíma. En mikið gerði hann fyrir mig. Ég náði að fylla á bjartsýnistankinn. Það var eitthvað farið að minnka í honum. Aðallega er það vegna þess að ýmislegt sem gengur hefur á í þjóðfélaginu síðustu daga hefur gert mig sorgmædda. Þeir sem hafa fylgst með blogginu mínu og athugasemdum hjá öðrum vita hvað ég er að tala um. En þarn kom saman, veit ekki hversu margir, kem með tölu í dag. Allir jákvæðir og brosandi tilbúnir í að taka á málum.

 

Hafið það gott í dag


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Segiði svo að bloggið virki ekki. Strax búin að fá símtal frá mömmu sem bauð mér englavængið að láni. Takk Hafdís

Anna Guðný , 23.1.2009 kl. 11:46

2 Smámynd: Erna

Ég sendi yfir til þín á vængjum orku og kærleik duglega kona. Batakveðjur til bóndans þíns.

Erna, 23.1.2009 kl. 11:59

3 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir það Erna. Það hefur þá það sem sveif hér í gegnum íbúðina hjá mér áðan.

Hafðu það gott í dag ljúfan

Anna Guðný , 23.1.2009 kl. 12:02

4 identicon

Bleeessuð Anna það hlaut að vera að húsbóndinn væri í aðgerð hef ekki séð hann í endurhæfingu. Vonandi fær hann góðann bata. Ég hef enga trú á þvi að hann verði erviður sjúklingur, þá verður þú að nota aðferðina hanns Saxa læknis bara að sprauta honum. Eigðu góða helgi með þínu fólki.

Bögga (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 12:26

5 Smámynd: Anna Guðný

Bögga mín: Áttu sprautu?

Takk fyrir ráðleggingarnar

Hafðu það sjálf gott um helgina

Bið að heilsa frúnni

Anna Guðný , 23.1.2009 kl. 14:14

6 Smámynd: Renata

Stutt en yfirgripsmikla færsla hjá þér, vonandi eiginmaðurinn jafna sér fljótt eftir aðgerð og mun geta stríða þér eftir nokkra daga.

Snúðu neikvæðum hugsunum í jákvæðar og sjáðu hvernig það breytir deginum -

Renata, 23.1.2009 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Guðný
Anna Guðný

Langar að æfa mig í að setja saman texta. Sé til hvað ég gef mér mikinn tíma í það.

Sjálfstæður Herbalife dreifingaraðili. www.heilsufrettir.is/anna

Þeir sem vilja hafa samband má benda á netfang sem er: ollana@simnet.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Um bloggið

ollana

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband